Tímaflakk
Misstirðu af byrjuninni? Farðu aftur í allt sem var sýnt síðustu 12 tímana.
Hlaðborðið
Þú velur hvað er á heimaskjánum, eftir aldri og áreiti.
Skammtur
Veldu hve marga þætti barnið má horfa á. Svo kveður sjónvarpið og skjárinn læsist.
Barnatími dagsins
Ný blanda af þáttunum sem þú valdir, á hverjum degi.
Beint í loftið
Appið opnast beint í útsendingu, ef þú vilt.
Vertu með í prófuninni
Opnaðu boðið á iPhone, iPad eða Mac og samþykktu það í TestFlight.
Opna boðið í TestFlight- Þú opnar boðiðÁ iPhone, iPad eða Mac.
- Þú samþykkir þaðÍ TestFlight, með Apple ID.
- Þú setur upp appiðÍ TestFlight á Apple TV.
Apple TV með tvOS 26 eða nýrra. Sumt efni krefst íslenskrar nettengingar.
Aðstoð · Support
Vantar þig hjálp?
Ef eitthvað virkar ekki eða þú hefur hugmynd, sendu ábendingu beint úr TestFlight á Apple TV. Skjámynd fylgir með.
Algeng vandamál
- Efni spilast ekki. Sumt efni má RÚV bara sýna á Íslandi. Þá þarf Apple TV að vera tengt íslenskri nettengingu.
- Rás sést ekki. RÚV 2 og RÚV 3 birtast bara þegar þær eru í loftinu, og RÚV sendir ekki út um miðja nótt.
- Þáttur hvarf. RÚV fjarlægir þætti þegar sýningarréttur rennur út.
- Stillingarnar opnast ekki. Haltu tannhjólinu eða „Breyta hlaðborðinu“ inni í 3 sekúndur.
- Skjárinn segir að sjónvarpstíminn sé búinn. Fullorðinn heldur Select inni í 3 sekúndur. Lásinn fer líka sjálfur kl. 4 að nóttu.
In English: imbinn is an unofficial Apple TV app for RÚV's streams. For help, send feedback from TestFlight on your Apple TV. Some content is only available from Icelandic internet connections.
Persónuverndarstefna · Privacy policy
Persónuvernd
Síðast uppfært 18. október 2026.
Appið
imbinn safnar engum persónuupplýsingum. Appið er án innskráningar, rakningar, auglýsinga og greiningartóla, og það sendir engar upplýsingar um þig eða áhorf þitt til okkar eða annarra. Eina undantekningin er Textavél, ef kveikt er á henni (sjá neðar).
Stillingar þínar, svo sem hlaðborðið, barnatíminn og hve lengi hefur verið horft í dag, eru aðeins geymdar á Apple TV-tækinu sjálfu. Þær hverfa ef appinu er eytt.
Útsendingar og efni eru sótt beint af vefþjónum RÚV, eins og þegar horft er á ruv.is. RÚV sér því IP-tölu tækisins eins og við hverja aðra heimsókn, og um það gildir persónuverndarstefna RÚV. imbinn er ekki á vegum RÚV.
Appið er gert til að börn geti notað það og safnar engum upplýsingum frá börnum.
Textavél (aðeins ef kveikt er á henni)
Textavél er slökkt nema þú kveikir á henni. Á meðan hún er í gangi sendir appið stutta búta af hljóði þáttarins, auðkenni þáttarins og handahófskenndan kóða tækisins til vefþjóns okkar. Kóðinn er ekki tengdur Apple-reikningi þínum; við vitum aðeins hver á hann ef þú sendir okkur hann. Vefþjónninn lætur þjónustuaðila breyta hljóðinu í texta og þýða hann á ensku; þeir fá aðeins hljóð og texta þáttarins, ekki kóðann. Þýðingar eru geymdar til að nýta fyrir aðra áhorfendur og eru ekki tengdar þér. Vefþjónninn skráir hve margar mínútur hver kóði hefur notað, og á hvaða þáttum, til að halda utan um tímann. Eins og við allar nettengingar sér hýsingaraðilinn IP-tölu tækisins. Ekkert er sent þegar slökkt er á Textavél. Viltu láta eyða skráningu kóðans þíns? Sendu kóðann sem ábendingu úr TestFlight.
Prófun í TestFlight
Í prófunarútgáfu deilir Apple með okkur nafni og netfangi prófara, og hruntilkynningum og ábendingum sem prófarar kjósa sjálfir að senda. Það er unnið samkvæmt skilmálum Apple fyrir TestFlight og aðeins notað til að laga og bæta appið.
Samband
Spurningar um persónuvernd má senda sem ábendingu úr TestFlight.
Privacy policy (English)
The app. imbinn does not collect any personal data. It has no accounts, tracking, ads or analytics, and sends no information about you or what you watch to us or anyone else. The only exception is Live translation, if you turn it on (see below). Your settings are stored only on your Apple TV and are removed when you delete the app. Streams and programmes are loaded directly from RÚV's servers, which see your device's IP address as with any visit to ruv.is; RÚV's own privacy policy applies to that. imbinn is not affiliated with RÚV. The app is designed to be used by children and collects no information from them.
Live translation (only if you turn it on). Live translation is off unless you turn it on. While it's on, the app sends short pieces of the programme's audio, the programme's ID and a random code for your Apple TV to our server. The code isn't linked to your Apple account; we only know who it belongs to if you send it to us. The server uses service providers to turn the audio into text and translate it into English; they receive only the programme's audio and text, not your code. Translations are kept to reuse for other viewers and aren't linked to you. The server records how many minutes each code has used, and on which programmes, to keep track of time. As with any internet connection, the host sees your device's IP address. Nothing is sent while Live translation is off. To have your code's records deleted, send the code as feedback from TestFlight.
TestFlight. During beta testing, Apple shares testers' name and email with us, along with crash reports and feedback testers choose to send, under Apple's TestFlight terms. We use it only to fix and improve the app.
Contact. Send privacy questions as feedback from TestFlight.